Strokleðurjakkaföt keisarans
1.
​
allir vinstrisinnaður menn eru kommadjöflar
sturtuhausar & bavíanar með rafmagnsbyssur
nískupúkar í röndóttum íþróttagöllum með ennisband
​
og þeir eiga að tæma alla vasa & henda sér á grúfu!
og þeir eiga að tæma alla vasa & henda sér á grúfu!
og þeir eiga að tæma alla vasa & henda sér á grúfu!
​
​
2.
​
launaskrið námumanna verður ekki stöðvað með þjósti
líkt & borðedik jafnast víst ekki á við býflugnahunang
strandbátar flotskerja setjið andlit í gaupnir
​
áður en það verður um seinan!
áður en það verður um seinan!
áður en það verður um seinan!
​
​
3.
​
slysabörn, ég man ekki hvar ég heyrði það fyrst
innanum glasamottur flúrlampa & göngugrindur
að stjaksetning sé skömminni skárri en kjöldráttur
​
en það er sjálfsagt helvítis lygi!
en það er sjálfsagt helvítis lygi!
en það er sjálfsagt helvítis lygi!
​
​
4.
​
stiftamtmenn með brjóstsykursnef í hverjum koppi
ofan í þoturákir kráka & vænglausra sjálfsmorða
í bráðabana við heldri borgara á drykkjuknæpum
​
uns hver einasti kjaftur er kominn í súr!
uns hver einasti kjaftur er kominn í súr!
uns hver einasti kjaftur er kominn í súr!
​
​
5.
​
stríðalinn af ostum og sanseruðum tundurduflum
raular ræl í eigin eyru & lygnir höfgum augum
með væl í vara stað dýrðar kost & járnaðar iljar
​
upp og af stað út í eilífðina!
upp og af stað út í eilífðina!
upp og af stað út í eilífðina!
​
​
6.
​
djúpir varalitir sprengja heit og strengja kóralrifin
draga ýsur fyrir skrópaveika & legusára sjúklinga
blása úr nös & gefa svo í til að ekki fari hýran fyrir bí
​
híf opp & höggvið siglutrén!
híf opp & höggvið siglutrén!
híf opp & höggvið siglutrén!
​
​
7.
​
þetta er ráðherrann sem talar fyrir tómum sal
gefið mér samband við álfakóng hið snarasta
í valdastöðum víðast hvar eru stigamenn lofthræddir
​
& það brennur sólarljós á breiðum spjótum!
& það brennur sólarljós á breiðum spjótum!
& það brennur sólarljós á breiðum spjótum!
​
​
8.
​
til þerris hengilmænur votar úr hyljum sjávar
á fúnum þurrkhjöllum tyrfðra stjórnsýsluhúsa
það er skafrenningur & ekki dögg fyrir sólu
​
því nú sleikja hundar blóð & lauga sig konur!
því nú sleikja hundar blóð & lauga sig konur!
því nú sleikja hundar blóð & lauga sig konur!
​
​
Gefið út af SLIS (Sumarbúðum listhneigðra sósíalista) í sérriti 2008.